Hjólastilling í Kópavogi

Rétt hjólastilling skiptir miklu máli fyrir aksturseiginleika bílsins, öryggi og endingu dekkjanna. Bílhúsið er rótgróið verkstæði á Smiðjuvegi í Kópavogi sem hjólastillir allar tegundir bíla.

Hvenær þarf hjólastillingu?

Láttu athuga hjólastillinguna ef þú tekur eftir einhverju af eftirfarandi:

  • Bíllinn rásar eða dregur til annarrar hliðar á beinum vegi
  • Stýrið hallar til hliðar þótt bíllinn fari beint áfram
  • Dekkin slitna ójafnt, til dæmis meira á innri eða ytri brún
  • Eftir þungt högg, til dæmis ofan í holu eða upp á gangstéttarbrún
  • Eftir dekkjaskipti eða viðgerð á stýrisbúnaði eða fjöðrun

Af hverju hjólastilling?

  • Lengri ending dekkja: rétt stillt hjól slitna jafnar og dekkin nýtast betur.
  • Betri aksturseiginleikar: bíllinn heldur stefnu og stýrið svarar eðlilega.
  • Meira öryggi: gott veggrip og stöðugleiki skipta máli, ekki síst í hálku og bleytu.
  • Minni eldsneytis- og orkueyðsla: minna viðnám þýðir minni eyðslu, hvort sem bíllinn gengur fyrir eldsneyti eða rafmagni.

Hvernig fer það fram?

Fyrst mælum við hvernig hjólin standa miðað við uppgefin gildi framleiðandans. Ef eitthvað er úr skorðum stillum við hjólin svo þau vísi rétt og stýrið standi beint.

Hafðu samband

Bílhúsið ehf
Smiðjuvegi 60 (Rauð gata), 200 Kópavogi
Sími: 557 2540
Netfang: bilhusid@bilhusid.is

Opnunartími
Mánudaga til fimmtudaga: 08:00–17:00
Föstudaga: 08:00–13:00
Lokað um helgar

Panta tíma