Bremsuviðgerðir í Kópavogi

Bremsur bílsins eru mikilvægt öryggistæki og þurfa alltaf að vera í fullkomnu lagi. Bílhúsið er rótgróið verkstæði á Smiðjuvegi í Kópavogi sem gerir við bremsur á öllum tegundum bíla.

Bílhúsið er Brembo Expert verkstæði.

Brembo Expert verkstæði

Hvenær þarf að líta á bremsurnar?

Láttu athuga bremsurnar ef þú tekur eftir einhverju af eftirfarandi:

  • Ískur eða söngur heyrist þegar þú hemlar
  • Titringur finnst í stýri eða bremsupedala við hemlun
  • Bremsupedalinn er mjúkur eða fer óvenju langt niður
  • Bíllinn dregur til hliðar þegar þú hemlar
  • Viðvörunarljós fyrir bremsur logar í mælaborðinu
  • Bíllinn er lengur að stöðvast en áður

Hvað gerum við?

  • Skoðum og metum ástand bremsanna
  • Skiptum um bremsuklossa
  • Skiptum um bremsudiska
  • Almennar bremsuviðgerðir

Af hverju að sinna bremsunum?

Slitnir bremsuklossar og bremsudiskar lengja hemlunarvegalengdina og geta valdið frekari skemmdum ef ekkert er að gert. Með því að láta líta á bremsurnar í tæka tíð tryggir þú öryggi þitt og annarra í umferðinni og kemur í veg fyrir stærri viðgerðir síðar.

Hafðu samband

Bílhúsið ehf
Smiðjuvegi 60 (Rauð gata), 200 Kópavogi
Sími: 557 2540
Netfang: bilhusid@bilhusid.is

Opnunartími
Mánudaga til fimmtudaga: 08:00–17:00
Föstudaga: 08:00–13:00
Lokað um helgar

Panta tíma