Smurþjónusta í Kópavogi

Ný olía heldur vélinni hreinni og dregur úr núningi milli hreyfanlegra hluta. Bílhúsið er rótgróið verkstæði á Smiðjuvegi í Kópavogi og við smyrjum allar tegundir bíla, hvort sem um er að ræða fjölskyldubílinn eða vinnubílinn.

Bílhúsið er Liqui Moly Long Life Center og við notum Liqui Moly olíur.

Liqui Moly Long Life CenterLiqui Moly

Hvenær er komið að olíuskiptum?

Gott er að fylgja því sem framleiðandinn mælir með í þjónustubók bílsins. Einnig er ráðlegt að koma með bílinn ef:

  • Komið er að olíuskiptum samkvæmt þjónustubók eða áminningu í mælaborði
  • Viðvörunarljós fyrir olíu kviknar
  • Olían á kvarðanum er orðin dökk eða magnið of lítið
  • Langt er liðið frá síðustu smurningu, en margir láta smyrja bílinn um það bil einu sinni á ári

Hvað felst í smurþjónustu?

  • Olíuskipti á vél
  • Ný olíusía
  • Skipt um loftsíu og frjókornasíu ef þarf
  • Helstu vökvar athugaðir

Af hverju reglulega?

Með tímanum missir olían eiginleika sína og óhreinindi safnast í hana. Regluleg smurning ver vélina gegn óþarfa sliti og getur sparað kostnaðarsamar viðgerðir síðar meir.

Hafðu samband

Bílhúsið ehf
Smiðjuvegi 60 (Rauð gata), 200 Kópavogi
Sími: 557 2540
Netfang: bilhusid@bilhusid.is

Opnunartími
Mánudaga til fimmtudaga: 08:00–17:00
Föstudaga: 08:00–13:00
Lokað um helgar

Panta tíma