
Sjálfskiptingin er einn dýrasti hluti bílsins að gera við. Góðu fréttirnar eru að með reglulegum olíuskiptum má lengja líftíma hennar verulega og koma í veg fyrir mörg vandamál áður en þau byrja.
Af hverju skipta um olíu á sjálfskiptingu?
Með tímanum slitnar olían, missir eiginleika sína og safnar í sig óhreinindum. Þá fer skiptingin að skipta sér grófar, hika eða renna á milli gíra. Ný olía heldur skiptingunni hreinni, kaldari og mýkri í notkun.
Skipt um alla olíuna
Við tæmum ekki bara hluta af olíunni heldur skiptum um olíu á allri skiptingunni. Þannig losnar gamla olían og óhreinindin alveg út og skiptingin fær fullan skammt af nýrri olíu.
Gear Tronic tæki og Liqui Moly olía
Við notum Gear Tronic olíuskiptatæki frá Liqui Moly, sem skiptir um olíuna á allri skiptingunni, og eingöngu gæðaolíur frá Liqui Moly sem henta skiptingunni í þínum bíl. Bílhúsið er Liqui Moly Long Life Center.

Hvenær er komið að olíuskiptum?
Ef skiptingin er farin að skipta sér hart, hika eða hegða sér öðruvísi en áður er gott að láta líta á hana. Við förum yfir bílinn og ráðleggjum þér um hvenær er best að skipta.
Bókaðu tíma
Hringdu í síma 557 2540 til að bóka tíma.
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 8–17 og föstudaga kl. 8–13. Bílhúsið ehf, Smiðjuvegi 60, Kópavogi.

